Skoda eigendur njóta nú þess besta í bifreiðaþjónustu sem í boði er á Íslandi. Á athafnasvæði HEKLU við Laugaveg er rúmgott og fullkomið viðhalds- og þjónustusvæði sem einungis er ætlað Skoda eigendum (ekið inn frá horninu á Brautarholti og Nóatúni). Þar bjóðum við úrvals þjónustu fyrir hinn skynsama Skoda eiganda.
Skoda hefur flutt í nýjan og stærri sýningarsal fyrir nýja bíla, Laugavegsmegin á HEKLU svæðinu, við Laugaveg 170. Komdu og sjáðu það nýjasta sem Skoda hefur að bjóða.
Frábær þjónusta og tækni
Skoda er byggður á þróuðum tæknibúnaði og þarf því vandaða og tæknivædda þjónustu og eftirlit. Við hjá Skoda höfum allan þann tæknibúnað og greiningartækni sem bíllinn þinn þarfnast – og vel þjálfaða tæknimenn.
Við gerum enn betur við Skoda eigendur
Einkunnarorð Skoda eru, öryggi, gæði og skynsemi. Í því felst að við bjóðum við bestu aðstæður það sem þú þarft á að halda:
Vönduð forgreining
Almenn þjónustuskoðun
Vandað reglubundið eftirlit
Almenn smurþjónusta
Hemlaskoðun